Ég hef lengi ætlað að koma þessu frá mér, að tölvurnar í Star Trek eru lélegar. Reyndar gæti það verið vegna þess að þegar TOS var gert voru tölvur svona og menn hefur ekki órað fyrir því sem þær ættu eftir að geta. Tökum sem dæmi öryggisgæslu. Þegar menn koma inn tekur enginn eftir því, og þegar það gerist (þ.e. að menn taki eftir því) þá er ómögulegt að geisla þá bara inn í fangaklefann. Ég meina, það ætti að vera hægt…
Svo líka: Menn virðast gleyma því mjög oft að maður getur sagt við tölvuna, “Computer, locate Picard” sem dæmi. Þeir eru alltaf að ganga um skipið og leita.
Svo eru hundruðir annara svona galla sem ég einfaldlega man ekki eftir núna. Svaraðu ef þú manst eftir einhverju öðru.

Svo kemur hitt, sem mér þykir afar undarlegt. Það er alltaf talað um “The University” og “The Senent”, eins og það sé bara einn háskóli og eitt þing. Svo er líka furðulegt að pláneta eins og Qo'noS (heimapláneta Klingona), sem er helmingi stærri en jörðin skuli bara vera með eitt tungumál.

Og talandi um skrítnar plánetur, á ekki að skipta um þátt vikunnar?
Af mér hrynja viskuperlurnar…