Þegar ég hitti Dominic Keating... Fyrir 2 árum síðan fór ég á Sci-Fi convention í London.

Meðal gesta voru Dominic Keating (Malcolm Reed úr Enterprise), David Palfy (Anubis úr Stargate), Dean Haglund (Langly úr X-Files) & Billy Boyd (Pippin úr LOTR) og séstakur gestur var enginn annar en Chris Barrie (Best þekktur sem Gordon Brittas úr “The Brittas Empire” og Rimmer úr “Red Dwarf”

Allt byrjaði þetta á Laugardegi, en ég var mættur 2 dögum áður til að vera túristi í London.

Og ferðin byrjaði vel, Kreditkortinu mínu var synjað á hótelinu, og eyddi ég klukkutíma í GSM símanum mínum við að hringja heim og reyna að komast af því af hverju ég fékk synjun. Kom svo í ljós að ansas bankinn gleymdi að uppfæra kortið, því kvöldið áður lagði ég inn 100.000,- á það til að geta notað það þarna úti. Debetkortið mitt virkaði ekki neitt þarna úti. Allt gekk svo upp og ég komst á hótel herbergið mitt og svaf allt kvöldið.

Dagur 2. Byrja á því að koma öllu saman í öryggisskápinn, þegar ég fatta að vegabréfið er týnt. HOLY MOLY ! Eftir að hafa snúið herberginu við og farið niður í afgreiðslu hótelsins, finnst það ekki. Mátti sætta mig við það að fara í Íslenska Sendiráðið í London og fá tímabundið vegabréf, og það er ekki auðvelt að finna það BTW, var smá tíma að því !

Dagur 3. Þá byrjar þetta allt. Klukkan 10 að morgni og David Palfy stígur á svið og allir SG-1 aðdáendurnir dúndra á hann spurningar í sambandi við Anubis, Sokar & SG-1. Hann svarar öllu með bros á vör og gengur sáttur af.

Næst mætir Dean Haglund og hann er í góðu skapi, lék sér svolítið og hafði gaman að svar spurningum í sambandi við X-Files og Lone Gunmen seríuna.

Næst mætir Kristen Dalton á svæðið (Dana Bright úr Dead Zone á Skjá 1), ég var kominn þangað til að sjá hana. Enn á ný stigu SG-1 aðdáðendurnir á lappir og dúndruðu á hana spurningum úr “Ressurection” einum þætti sem hún var með gestahlutverk í. Allir spurðu hverning það var að vera í þætti sem var leikstýrt að Michael Shanks og þannig og hún svarar því samviskulega, svo kem ég með mínar spurningar í sambandi við Dead Zone (er aðdáðandi seríunnar btw) og það léttir á henni að það sé spurt um einhvað annað en Stargate. Hún svarar þeim með bros á vör.

Næst Dominic Keating. Hann er sko hrokafullur, sífellt skjótandi á hina og þessa úr ENT og er ánægður með sig. Fékk ekki góða dóma í minni bók. Hann var stutt á sviðinu.

Næst Billy Boyd, sat ekkert yfir honum því ég dreif mig í Photosessions með Kristen Dalton & Dominic Keating. Hann hann er stuttur eins og sést á myndinni.

Svo var komið að hádegi, og maður dreif sig svo á veitingarstaðinn á hótelinu. Er mættur og er að bíða eftir borði, kemur Kristen Dalton. Hún þekkir mig frá því að spyrja spurninganna um morguninn og svo síðar úr myndatökunni. Hún spyr hvort hún megi setjast hjá mér. Ég verð eins og lítill strákur og jánka því. Við tölum um það sem hún hefur verið í Dead Zone og fleira, Gaman ! Gaman ! Svo eftir 20 mín samtal líkur því og hún borgar fyrir matinn :) :):)

Restinn af deginum er ég svífani á skýi og sé ekkert annað en hana.

Dagur 4. Þessu líkur um morguninn með að þau koma öll aftur á sviðið og svara spurningum eins og morguninn áður. Síðar um kvöldið fer maður að fá sér að borða, þegar ég fæ skilaboð að vegabréfið mitt fannst. ég er ánægður núna :)

Fæ mér að borða og ætla svo að drífa mig upp á herbergið. Fer í lyftuna og ýti á takkan fyrir 8. hæðina. Hurðin lokast og fer ekki neitt. Lyftan er þá biluð og mátti ég dúsa í lyftunni í 1 og hálfan tíma.

Svo komst ég út úr henni í lokin og kom hótelstjórinn og gaf mér helmingsafslátt af síðustu nóttinni. Er ánægður og legg af stað í partý/verðlaunaafhendingu sem Chris Barrie sér um. Verðlaun voru veitt og allir ánægðir :)

Svona var mín ferðasaga á Sci-Fi Convention í London fyrir 2 árum. Vona að allir hafi haft gaman af þessari lesningu.

kv. Mallory
“Space, the final frontier….”