Allavega finnst mér þetta vera staðreyndavilla. Það sem ég skil ekki er af hverju Odo er með vírusinn. Það er nær óhugsandi að hann sé með vírusinn. Ég man eftir þessu allt í einu að í þætti sem gerðist fyrir löngu varð Odo veikur. Það var farið með hann til hinna hamskiptinganna og þeir sögðu honum að stíga í vatnið (þ.e. The Link) og hann yrði ekki veikur. Hann fór oní vatnið og þeir komust að þeirri niðurstöðu að til að refsa honum nógu mikið fyrir að drepa hamskiptinginn að taka af honum hæfileikann til að skipta um form og yrði fastur sem maður. Þar sem þetta var formþroskunarvera(þ.e. veira sem hefur áhrif á formþroskunina), ætti hann að vera laus við veiruna örugglega. Þeir sem eru hissa á því að hann er hamskiptingur núna þá fundu þeir eina litla flaug með hamskiptingaunga sem var sendur á sama tíma og Odo. Odo sá um ungann en hann var að deyja(þ.e. unginn, ekki Odo), þakkaði hann Odo hjálpina með því að sameinast honum og gefa honum formþroskunarhæfileikann aftur, án neinnar veiru. Ef Odo er samt sýktur, hefur það verið síðar á tímabilinu og ætti ekki að sjá neitt á honum strax. Julian Bashir ætti samt ekki getað fengið þessa niðurstöðu upp á þennan stjörnudag. Þeir sem eru ósammála, verða að rökstyðja afhverju þeir halda það. Ég er ekki 100% viss um þetta en ég skal glaður taka á móti öllum kenningum um þetta efni.