Búningarnir í Enterprise [Smá spillar] Samkvæmt heimildum á darkhorizons.com verða búningarnir í Enterprise fjólubláir og líta út eins og blanda af hermannabúning og Starfleet einkennisbúning. Á þeim er gul rönd um herðarnar. Þeir hjá darkhorizons voru ekki vissir um hvort röndin hefði einhvað með stöðu að gera. Einnig er einhverskonar merki á frammhandleggnum, “Það gæti verið NASA merki” segja þeir.

Í þáttununum treystir fólk ekki alveg hugmyndinni um Starfleet og sumir treysta ekki alveg ‘transporter’ tækninni. Fólk verður enn svoldið skrítið þegar það hittir geimveru þannig að þættirnir gerast svoldið snemma, bara nokkrum árum eftir að Cochran hittir Vulkana (um 2110)

Meðfylgjandi mynd er af Scott Bakula sem leikur Captain Jonathan Archer

Alla greinina er hægt að finna á http://www.darkhorizons.com/news.htm