Þar sem það virðist sem Star Trek áhugamálið hverfur hægt og rólega af yfiborði huga (erum með 0.08% af heildarheimsóknum í maí) þá langar mig svolítið að hafa greinarátak eins og maður sér ítrekað á Sápur.

Jæja, það sem ég var að hugsa eru að þið mynduð skrifa grein um uppáhaldspersónuna ykkar, uppáhaldsþáttaröð, uppáhaldsseríu, uppáhaldsþátt, uppáhaldsatburð, uppáhaldsskip eða bara allt sem ykkur getur mögulega dottið í hug.

Nóg er til af upplýsingum um Star Trek ef ykkur vantar heimildir og er Goggle góð leið til að finna þær.