1.Engann renna aðeins yfir seinustu sjö ár og setja amk eitthvað út á ýmis atriði við Janeway.

2.Quick fix á Maquis áhöfninni, en ég væri ánægður ef að litið yrði á feril hvers og eins á Voyager og dæmt út frá því í samráði við Janeway.

3.Ekkert Q-flipp. Ef að Q reddar þeim heim, þá er þeð frekar ódýr lausn.

4.Enga foreldra/ættingja Paris, Torres, Kim og 7&9. Auðvitað koma ættingjarnir…. segir sig sjálft.

5.Engan Mark [fyrrum unnusti/maður Janeway]. Ef að Mark lætur ekki sjá sig verð ég pissed.

6.Stöðuhækkun Kim. Hann verður að fá hana áður en hann kemur heim. Og hann verður að minnsta kosti að fá Lt.Commander tign.

7.Enga gesti. Auðvitað verða einhverjir góðkunningjar Starfleet að láta sjá sig. T.d. Picard, Data, Worf og fleiri…..
Voyager áhöfnin eru hetjur, og það er hreinlega vanvirðing ef að virt fólk innan starfleet láti ekki sjá sig.

8.Tímaferðalög. a)það hefur verið gert áður b)klisja dauðans.

9.Engir eftirmálar….. Auðvitað má hoppa smá fram í tímann og sýna eftirmála……. Hvar er liðið okkar og hvað er það að gera.

10.Og síðast en ekki síst, ódýrar lausnir… nei takk

p.s. hvar eru delaney systur?