Seinasta vetur póstaði ég hérna nokkrum vel völdum spurningum úr episode 4, 5 og 6.
Ég hef ákveðið að breðga á leik á ný og sjá hvort ykkur gengur betur í þetta skiptið. ;)

Sú nýbreytni er þó núna að ég ætla að skipta þessu í tvo flokka, léttan og erfiðan.

Léttar

1. Hvaða geimverutegund er C-3PO að vísa til þegar hann segir “Do you think they'll melt us down?”

2. Hver skynjaði nærveru Luke Skywalkers um borð í skutlunni Tydirium?

3. Hver átti ógeðslegan “eðlu-apa” að nafni Salacious Crumb sem gæludýr?

4. Hvað hét frænka Luke?

5. Hvaða vélmennategund er með on/off takka aftan á hálsinum?

6. Hvaða persóna var fyrst til að tala í episode 4?

7. Hverjum var lýst sem “strange old hermit” og af hverjum?

8. Hvað var það fyrsta sem var eyðilagt með “superlaser” Dauðastjörnunnar?

9. Hver sagði við Luke: “Your destiny lies along a different path than mine”?

10. Af hverju vildi Chewbacca ekki stökkva niður í ruslarennuna?

Erfiðar

1. Hver var eina persónan sem nefndi plánetuna Sullust?

2. Hvað er Tauntaun með margar nasir?

3. Á hvaða hlið hásæti keisarans voru stjórntækin?

4. Hvert var nafn Leiu þegar hún var dulbúin í höll Jabba the Hut?

5. Hvað fjarlægði Luke úr X-wing vélinni sinni áður en hann fór frá Dagobah?

6. Samkvæmt Yoda, hvað er þá alltaf á hreyfingu?

7. Hver var eina manneskan fyrir utan Luke sem sá Darth Vader án hjálmsins?

8. Á tungli hvaða plánetu finnast “stone temples”?

9. Hver er eina myndin þar sem C-3PO kallar Chewbacca “Chewie”?

10. Hvað heitir Biggs fullu nafni?

Ég pósta svörin svo seinna.

Góða skemmtun!