Jæja ég verð víst að viðurkenna það hér með að ég er fallin. Loksins náði star trek veiran taki á mér. Eftir að hafa gert grín og hlegið að öðrum Trek vinum. get ég þetta ekki lengur. Ég er Trek nörd!!!!!! Allavega Borg nörd. Þetta Borg dæmi er að gera mig vitlausann ég verð að vita meira um það. Ég hef bara horft á voyager og þoli ekki DS9 en þarf sem betur fer ekki að hugsa um þá þætti lengur. En Borg dæmið er eitt það flottasta sem að ég hef séð í þessum sci-fi heimi og mér fynst verst að ég skuli ekki hafa uppgvötað það fyrr en svona er það bara. Ég er bara að forvitnast um það hvort að einhver hér veit hvar ég get fundið gamla þætti á leigu sem að gerast þegar að Borg kemur fyrst til sögunar. ég vil ekki vita neitt um klingon og sollis bara Borg. Því að Borg er SNILD! SNILD! SNILD! Takk fyrir… Fongus of Borg.