Í mörg ár hef ég verið mikill aðdáandi Sci-Fi, sérstaklega sjónvarpsefni. Byrjaði sennilega á StarWars eins of hjá svo mörgum. Þegar RÚV byrjaði að sýna ST DS9 og síðar Voyager þótti mér það himnasending og hef síðan verið fastur við sjónvarpið á sunnudagseftirmiðdögum (vááá langt orð). Þrátt fyrir þessa kæti mína finnst mér innihald þáttanna verða sífellt rýrra og minna í þá spunnið. Ok, ok það er svo sem kannski ekki auðvelt að gera mörghundruð góða þætti, en það sem vantar svo mikið í VOY og DS9 (síðusta serían hefur það reyndar) en það er tilgangur og meining. Stærra plott sem gengur í gegnum alla þættina. En þetta hefur B5 haft alveg frá upphafi og hef ég nú ákveðið eftir langan umhugsunnartíma að B5 er nú uppáhalds Sci-fi serían mín. Mig langar að heyra hvað fleirum finnst um þennan samanburð minn.