Ég sá það á síðu sem heitir Star Trek Fandom (http://www.fandom.com/star_trek) að Q á eftir að koma aftur í þætti sem heitir Q2 og raunverulegur sonur John de Lancie, Keegan mun koma á skjáinn með honum sem sonur Q.
Ég held að þetta verði alveg mest brilliant þátturinn….

Það er svo langt síðan Q hefur komið. Ég var farinn að sakna hans.
En kannski svona til að refresha minnið á sumum ykkar þá kom Q fram í þætti í voyager sem heitir The Q and the Grey og í þeim þætti biður Q Janeway um að eignast með sér barn og Janeway dregst um leið inn í borgarastyrjöld í Q-Continuum. En í endanum á þættinum neitar Janeway Q um bónina og Q eignast barnið með Q-female. Það er semsagt sonurinn sem á að koma fram í þættinum Q2 í 7seasoni af Voyager.

Ég held að þetta verði alveg sérdeilis prýðilegur þáttur. Vonandi allavega.


Reyni