Roadrunner fuglinn, hann hr. Vegfarandi hefur tekið yfir síðuna og þið megið endilega leika ykkur að því að finna hann á ýmsum stöðum. Smellið bara á “Star Trek síða Vegfaranda” og þið eruð komin. Meira auðvitað síðar, yfirflutningur gagnabankans tekur þó nokkurn tíma, en ég er að semja grein um líf Data fyrir “Matsalinn” og “Sýndarheimurinn” kemur stuttu eftir gagnabankanum. Hvað finnst ykkur um nýja útlitið, hvað finnst ykkur þurfa að laga og svo framvegis og svo framvegis.

Einnig, allir sem vilja hjálpa, minnist á það að neðan og við ræðum saman síðar. Viktororri er þegar búinn að ákveða að hjálpa með Harry Potter síðuna. Einhverjir sem nenna að gera ýtarlegar þátta, kvikmynda eða leikjagagnrýnir??? Það er ýmislegt sem þarf að gera og ég vil endilega gera þetta að smá samvinnuverkefni til að byrja með.

Kveðja, Kári Emil
Af mér hrynja viskuperlurnar…