Ég hef oft verið að pæla í þessu ..
Han Solo trúir ekki á tilvist “The Force”
Hann er akkurat öfugt við Luke Skywalker persóna sem berst með byssum og trúir á tilviljanir og heldur að hann geti bara treyst á sjálfan sig

Hann og Chewie hafa verið að smygla fyrir Jabba þegar skip helstirnisins koma og þeir kasta varningnum útbyrgðis og koma sér í skuldir við hann. Svo á plánetunni Tatoinne hittir hann Luke Skywalker og Obi Wan Kenobi sem þurfa að komast eins fljót og þeir geta til Endor. Hann býður þeim far fyrir himinhátt gjald. Þeir taka því.

Og svo þegar þeir koma að Endor er þar “Asteroid Field” Og þar lenta þeir í aðdráttar geisla “Death Star”

Allan tíman frá því í fyrstu myndini í “Death Star” voru þeir báðir ástfagnir að Leiu Orgona.(held það sé skrifað svona)Þeir ákveða að bjarga henni og koma sér í burtu. Obi Wan fer að slökkva á aðdráttargeislanum meðan þeir fara og bjarga Leiu. Obi Wan mætir svo svarthöfða í bardaga og tapar vísvitandi.(að mínu mati)Svo halda þau áfram ferð sinni og taka þátt í “Rebel Assault”sem rústar helstirninu. En það merkilega er að Han fer en kemur aftur hann hefur snúið við einhversstaðar á miðri leið.

Hver er hann. Hann er ruddi. Hann er bardagamaður. Hann er góður félagi. En þetta er allt svo hversdagslegt einhvað sem maður finnur hjá hverjum og einum.

Hmm Maður fær aldrei að vita uppruna Han. Anakin er faðir Luke's. Leia er systir Luke's svo að þau eiga sama uppruna. Maður veit meira að segja upprunna vélmennana c3po og r2d2. C3po var smíðaður af Anakin Skywalker og R2dt var smíðaður og gerður að uppreisnini heyrði ég á netinu. Boba Fett er sonur Jango Fett reyndar klónaður en það skiptir engu.

En Han….Ef einhver hefur Upplýsingar um Hver hann er sem persóna. Sem sagt Foreldrar og slíkt hvar hann fæddist og hversu gamall hann er í myndunum endilega hafið samband. En ég helt allavega að Han Solo sé dularfyllsta persóna Star Wars.

PS: Ég er star wars fíkill ég þarf þessar upplýsingar svo ég róist.