Kelly Waymire lést núna á fimmtudaginn 35 ára gömul. Hún hefur leikið tvö hlutverk í Star Trek, var hin skemmtilega Elizabeth Cutler í “Strange New World”, “Dear Doctor” og “Two Days and Two Nights” og var leikkonan Lanya í Voyager þættinum “Muse”.

Mér þótti Cutler mjög skemmtilegur karakter og hefði endilega viljað sjá hana í 3. seríu úr því að hún kom ekkert í 2. seríu. Hún hafði tekið að sér mörg gestahlutverk og hafði verið aðalpesóna í tveimur þáttum.

Að hennar eigin sögn var John Billingsley sem leikur Phlox mjög skemmtilegur, en hann var sá sem hún vann mest með. Ástarsamband milli þeirra var eitthvað sem var alls ekki óhugsandi.



————————————- -
Kári Emil Helgason
Af mér hrynja viskuperlurnar…