Sælir.
Ég var að velta því fyrir mér hvort að einhver hafi orðið var við það að í Enterprise seríu 1, þætti 2 (“Fight or Flight”), þá var einhverskonar óþekkt skip sem hafði gert árás á skipið sem var vélarvana. Þetta skip samrýmdist að flestu leyti útliti Breen skipanna sem komu fram í seinni seríum DS9, nema hvað það var töluvert frumstæðara.
Vitið þið hver sagan er á bak við samskipti sambandsins við Breen, og hvernig fyrstu kynni sambandsins af Breen voru?
Ennfremur, vitiði um eitthvað sem bendir til þess að þetta hafi ekki verið Breen, eða að þetta hafi verið þeir?