Sælir.

Ég var að horfa á DS9 seríu 2, episode 2 (“The circle”), þegar ég tók eftir því þegar ágætlega var liðið á þáttinn að beðið var um samband við aðmíral hjá Starfleet að nafni Chakotay. Ekki er ég viss um hvort að þetta hafi verið skrifað á sama hátt, né hvort að þetta sé á einhvern hátt skyldmenni þess Chakotay sem við þekkjum og dáum úr Voyager, og því datt mér í hug að spyrja ykkur álits.

Ég veit það að Chakotay var sjálfur Lt. Commander þegar að hann hætti starfi sínu og gekk í lið með Marquis, en ekki man ég þess getið að hann hafi verið úr fjölskyldu Starfleet manna.

Chakotay hef ég alltaf ályktað hans fyrra nafn, ekki hans síðara - og það hvort að hann hafi síðara nafn hefur bara aldrei komið málinu við fram að þessu.

Getur einhver varpað ljósi á þetta? (Það vantar hvort eð er smá action í þetta áhugamál..)