Nú er að koma að því að fyrsti RPG Star Wars leikurinn komi út 12. september, 2003. Þetta er magnaður leikur sem hefur fengið meðaleinkunn af gagnrýnendum 93/100 (gamerankings.com)

Leikurinn er heldur ekki framleiddur af hálfvitum, enda gerðu þau Neverwinter Nights og mun leikurinn nota sama “engine”. Leikurinn inniheldur yfir 13.000 setningar og er einn sá stærsti af sinni tegund.

Hann kemur aðeins út á XBox 12. september, 2003, og svo ári seinna á PC. Ég held það sé komið mál að fá sér XBox um leið og verðið lækkar aftur.