Jæja nú er best að hita aðeins upp í þessu áhugamáli. Nú er ég búin að gera stormtrooper búning og þið getið séð hann á síðunni minni www.simnet.is/mobius

Ég er að byrja á Boba Fett búning og er þegar búin að búa til brynjuna. Ég fékk hlutana af ebay og málaði þá sjálfur. Þið getið séð brynjuna á síðunni minni.

Ef einhver hefur áhuga á því að eignast stormtrooper búning þá get ég komið þeim í samband við dreifingar aðila.

Þetta er mikil vinna og menn þurfa að hafa fima fingur við svona vinnu.