Þetta áhugmál hefur verið dulítið dautt undanfarið og ég ákvað þá að lífga aðeins upp á það en það vita eflaust flestir þetta þannig þa´er þetta bara fyrir þá sem ekki vita þetta:)…….


A NEW HOPE

1.Á Jawa-flutningaskipinu má sjá andlit Kennys Baker í gegnum gleraugað á RD-D2.
-Ég tók ekki eftir þessu ég fann greinilega ekki rétt augnablik ef einhver gæti sagt á hvaða augnabliki það er þá er það vel þegið-

2.Þegar Stormsveitarmennirnir hafa brotið sér leið inní herbergið þar sem C-3PO og RD-D2 eru í felum í Dauðastjörnunni, rekur stormsveitarmaðurinn lengst til hægri höfuðið í um leið og hann gengur inn.
-Mér finnst þetta atriði geðveikt fyndið atriði-

3.Þegar Luke stígur frá borði úr X-wing flaug sinni eftir að hafa eytt Dauðastjörnunni, hrópar hann “Carrie” til Leiu prinsessu(mjög þekkt mistök)



THE EMPIRE STRIKES BACK

1.Í skýjaborg, í atriði þar sem Chewbacca,Leia,Lando,C-3PO og RD-D2 hlaupa fyrir horn og niður gang til að komast niður í Millenium Falcon er stór hópur stormsveitarmanna að elta þau. Þegar stormsveitarmennirnir koma fyrir hornið má sjá að einn liðsmanna fyrir miðju á í vandræðum með brjóstplötuna. Hún er alveg laus og hristist fram og aftur. Hinir liðsmennirnir flykkjast í kringum hann til að reyna að fela þessi mistök.
-Ég skil ekkert afhverju atriðið var ekki bara tekið aftur upp ef þetta var svona augljóst-


THE RETURN OF THE JEDI

1.Þegar Leia hittir Ewok í fyrsta skipti tekur hún hjálminn ofan. Myndavélin færist yfir á Ewok og svo aftur á Leiu sem tekur aftur niður hjálminn.

2.Í fysrtu tevimur myndunum er víravirkið í C-3PO allt í óreiðu og annar kálfi hans silfurgrár.Í þessari mynd er víravirkið hinsvegar í samhverft og kálfinn er jafn gylltur og hinir hlutar búksins.
-Á þetta ekki bara að vera svona hann fór í lagfæringu eða e-ð?-

Leiser sverðin varpa skuggum jafnvel þó þau séu gerð úr hreinni orku,ekki efni.
-ég held það yrði frekar erfitt að sleppa öllum skuggum á þessu og myndi eki kalla þetta mistök-

En ég vona að sumir höfðu haft gaman á að lesa þetta og endilega kíkið á þetta þið sem vissuð þetta ekki…