Það verður gaman að sjá hvort búningarnir breytast eina ferðina enn.
Mér finnst þeir alveg rosalega flottir eins og þeir eru og voru í First Contact, DS9 seinni hluta og Insurrection. Ég vill helst ekki að það verði neinar breytingar á þeim, allavega ekki eins og varð á Dress-uniformunum í Insurrection.

Þetta voru flottir dress-uniformar í Star Trek IX en ekki eins og þeir hafa verið í Trekkinu í gegnum árin. Þetta var of mikil breyting fannst mér. Búningarnir voru meira Naval uniformar frekar en hitt.
Þeir hefðu átt að halda í hefðina og breyta búningunum örlítið minna finnst mér.

Það fer nottla alveg eftir tímasetningu á þáttaröðinni, hvenær hún gerist. Hvort það verður rétt eftir DS9 eða löngu seinna, hversu mikið þeir breytast, ef þeir verða ekki þeir sömu.

En ef þeir eiga að breytast eitthvað meira þá vill ég að þeir verði frekar líkari gömlu TNG búningunum frekar en einhverjum Military uniformum.


Takk, búinn.

Reyni