Ýmsar Fréttir! Ég skrifa þessa grein út af tveimur ástæðum, bæði sem hjálparbeiðni til aðra samáhugamenn um Star Wars.. Reynum að minnsta kosti að byggja þetta áhugamál upp. Reynið að skrifa bara eitthvað sem er vit í og sendið það inn. Hin ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er til að koma með smá fréttaskot.

Útgáfudag Star Wars Galaxies hefur verið frestað samhvæmt mínum heimildum. Ég veit ekki hvenær hann á að koma út en eitthvað hef ég heyrt um að hann eigi að koma út einhverntímann í September. Ég vona að hann eigi eftir að koma fyrr út.

Billy Dee Williams sem leikur Lando Calrissian í Star Wars á afmæli á morgunn þann 6.Apríl. Alec Guinness átti afmæli fyrir þremur dögum eða þann 2.Apríl. Hann hefði orðið 89 ára en hann dó 5 August 2000.
Svo má til gamans geta að það fer að styttast í afmæli Des Webb en hann á afmæli 21 Maí.
Fyrir þá sem ekki vita hver Des Webb er þá er hann sá sem lék snjóveruna sem ætlaði að éta Luke í The Empire Strikes Back.

Vinsamlegast reynum að vera smá uppbyggileg hérna.
Íslenska NFL spjallsíðan