Hvað kom yfir Vúlkana. Vúlkanarnir hafa greinilega verið að gangast undir mikla karakter breytingu í Enterprise. Þeir eru allt í einu orðnir hrokafulir og yfirlætisfullir. Mér satt að segja finnst þeir ekki betri á nokkurn hátt, þó að þeir gefi óneitanlega kost á fleiri sögum. T'Pol er fín og hún er svöl. Og það er eiginlega helsti gallinn við hana sem Vúlkana. Svo ég vitni í “Broken Bow”:
Mayweather: “What direction”
T'Pol: “Any direction!”
Þetta er ekkert sérstaklega vúlkanskt, sérstaklega í ljósi þess að Vúlkanar hafa alltaf lagt mikið upp úr rökvísi og beinum og ákveðnum skoðunum. Það hefði verið betra ef hún hefði sagt:
Mayweather: “What direction”
T'Pol: “20° of the stern since that way they can't locate us!”
Reed: “How so?”
T'Pol: “The hexan layer is dense there”


Einnig er finnst mér hún heldur fljót að fara í fýlu. Hún er líka stjórnsöm, nánast upp að frekju. Ég held að þeir ættu að fylgjast með Spock og Tuvok og sjá hvernig alvöru Vúlkanar haga sér.

Lifi hugsjón Gene Roddenberry!
Kári Emil
Af mér hrynja viskuperlurnar…