Verðir Keisarans Ég held að flestir Star Wars aðdáendur viti hvað ég er að tala um þegar ég minnist á verðina í rauðu búniningunum, þessir sem voru í salnum uppi hjá keisaranum. Allavegana, mér persónulega fannst þeir alveg heví töff, en þeir komu bara svo lítið fyrir í myndinni að maður vissi ekkert um þá. Nú hefur George Lucas hins vegar lýst því yfir að liturinn á búningunum (blóðrauður) var valinn af sérstakri ástæðu og verður ástæðan skýrð nánar út í Episode II og III.
Þannig er það öruggt að við fáum að sjá til rauðu varðanna og kynnumst þeim betur í næstu mynd.