Ég verð að segja að fyrir mína parta þá er þetta það albesta frá star trek. Þarn eru þeir með það nýjasta besta og fremsta. Besti þátturinn var þegar að starfleet og klingon fóru að ná deep space nine aftur þessi loftför og bardaginn frábær.
Hvað varðar þetta allt þá fór ég að sjá það út að klingon eru víkingar lifa fyrir bardaga og vilja deyja þar til að komast til “himnaríkis”.
Kardasar eru nasistar hnepptu bajora sem eru gyðingar í ánauð.
Kardasar eru lúmskir með gríðarlega Öflug vopn og tilbúnir að stinga menn í bakið um leið og þeir snúa sér við.
Bajorar friðelskandi þjóð sem tilbiður sína guði og lifir í sátt. changelings eru svo japanir einhverjir voldugir menn sem hafa yfir gríðarlega miklum her að ráða sem er algjörlega tilbúin að fórna sér fyrir þá líkt og kamakazi. Starfleet að sjálfsögðu bandríkjamenn sem eiga að vera svo vitrir og friðsamir Þó að kaldhæðnin er sú að þetta er gífurlega kommúnistalegt allir eru jafnir og latídatida. Sjálfur held ég svo að Vulkans séu kommúnistar sína engin svipbrigði og annað.
Endilega að segja ykkar meiningar og jafnvel að afsanna mig. :)