Það er staðfest að Samuel Jackson fái meira að gera í Episode II sem Jedi meistarinn Mace Windu. Eins og flestir vita fékk hann ekki mikið að gera í síðustu mynd og olli það mér töluverðum vonbrigðum. Í næstu mynd mæðir mikið á honum og verður hann í einhverjum flottum bardagasenum, enda er hann bestur í því…á eftir Joda.