Gleðilegt ár - 2006 Kæru sápuunnendur.

Gleðilegt nýtt ár. Takk fyrir samskiptin á árinu sem var að líða. Fyrir allt efnið sem þið hafið sent inn og skemmtilegar umræður. Við erum búin að vera dugleg á árinu sem leið, við rifum áhugamálið upp eftir mikla lægð. Í dag er það í hópi vinsælustu áhugamálanna á Huga, þó svo að síðustu 2 mánuðina höfum við verið léleg í því að skrifa nýjar greinar. En við skulum standa okkur betur á árinu sem nú er hafið og halda okkar striki.
Ég hlakka til að halda áfram með sápurnar á árinu 2006 og vonast til að sjá nýjar myndir, kannanir og greinar fljótlega.

Nýárskveðja; Karat.