Maður verður að hrósa fyrir það sem vel er gert og mig langar að hrósa aðdáendum One Tree Hill og O.C. sérstaklega fyrir vandaðar umræður undanfarið. Ég veit að margir eru á undan okkur hérna á Íslandi og eru búnir að sjá alla aðra seríuna í þessum þáttum. Mér finnst aðdáunarvert hvað þið hafið vandað ykkur við að tala um seríu 2 á nokkrum korkum undanfarið algjörlega án þess að spilla nokkru fyrir okkur hinum. Þetta er frábært og við hin ættum að taka okkur ykkur til fyrirmyndar. Höldum áfram á þessari braut. :)

Karat.