Meira góðgæti Eins og einhverjir hafa kannski tekið eftir þá hef ég verið að dunda mér við það að bæta við Góðgætið undanfarna daga. Ég er að setja smá texta um hverja persónu í Nágrönnum og einnig myndir af þeim og húsunum sem þær búa í. Myndirnar sem komnar eru eru reyndar svolítið litlar en ég mun skipta þeim út þegar ég finn einhverjar flottari.
Ég er búin að skrifa um nokkrar persónur og mun halda áfram að bæta inn á næstunni. Endilega látið mig vita ef ykkur finnst einhverjar mikilvægar upplýsingar vanta eða bendið mér á síður með flottum Nágrannamyndum.

Fylgist með breytingunum. :)

Karat