One Tree Hill bætist við Góðgætið Jæja. Loksins er komið að því að upplýsingum um One Tree Hill hefur verið bætt við Góðgætið hér á síðunni. Mariakr var svo æðisleg að semja smá texta um aðalpersónurnar í þættinum eins og þið hafið séð sem hafið lesið síðustu greinina hennar. Ég þakka henni hér með kærlega fyrir. Ég á svo von á því að bæta fleiri persónum við bráðlega.

Njótið vel; Karat.