Hvað á það að þýða að láta mann hafa nýtt áhugamál í hendurnar þegar maður er ekki einu sinni á landinu? Þegar ég kom á huga í dag, eftir 32 daga fjarveru, biðu mín 51 ósamþykkt könnun hér á Sápur og 8 greinar, sem allar voru löngu komnar fram yfir síðasta söludag. Ég er ekki ánægður með þessi vinnubrögð, en ég mun gera mitt besta á næstu dögum til að greiða úr þessari flækju, en veit ekki hversu hratt það mun ganga sökum anna í vinnu. Svo þarf ég líka að horfa á granna og komast aftur inní málin! Svo vantar Admin sem horfir á hinar sápurnar þar sem ég hef ekkert vit á þeim ;)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _