Ok, ég hata Dinuh en ég vorkenni henni því hún missti banrið. Ég óskaði henni þess ekki að missa Lauru, ég get ekki ímyndað mér hvað er hræðilegt að missa barn, og ég held í alvöru að henni hafi þótt vænt um hana, allavega seinni hlutann af meðgöngunni. En ég var svo pirruð í þættinum í dag þegar hún sagði Cassie að þetta væri allt hennar sök og sagði að hún myrti barnið sitt og gekk m.a.s. svo langt að segja að hún hafi vitað af henni fyrir utan og planað þetta allt. Skil ekki Dinuh, hún er nýbúin að missa barnið sitt og það fyrsta sem hún gerir er að rífast við Cassie og kenna henni um allt. Hvernig er þetta Cassie að kenna spyr ég nú bara??? Hún hatar hana en vildi aldrei barninu neitt illt. Þetta er bara fáránlegt… Ég veit að Dinah er bara í sjokki og allt það en ef ég þekki hana rétt, mun hún ekkert jafna sig og mun alltaf kenna henni um þetta og hefna sín og e-ð…
Alveg týpíkst að þetta skuli gerast loksins eþgar Dinah var að verða mannleg!

Annars er ég fegin að Blake sé búin að segja ROss sannleikann, það var bara aðeins of seint. Skil alveg viðbrögðin hans, en vona að hann fari samt ekki að taka strákana af henni, það er too much. Og hvað er að gerast með Holly??

Bætt við 2. nóvember 2009 - 17:31
Og ok, hvað er Dinah núna að pæla??? Hún er klikkuð!! Ætlar hún að reyna að drepa sig með þessum pillum til að Hart fari að hafa ennþá meiri áhyggjur af henni og gleymi Cassie bara??! Hún er bara gjörsamlega CRAZY!!!!