Loksins sá Josh Revu eftir marga mánuði! Vá, maður er búinn að bíða eftir þessu í LANGAN tíma :D Ég var í algörri spennu allan þáttinn, sérstaklega þegar það voru atriði með Revu, Clone Revu, Josh, Cassie og Sean! Loksins gerðist þetta :) Núna veit hann og Cassie að Reva er lifandi og Josh sá báðar Revurnar í sundlaugarhúsinu:) Spurningin er hvaða áhrif klóninn mun hafa á sambandið þeirra og hvað þau munu gera við hana. Ég vona allavega að eþtta eyðileggi ekki allt, eftir allt sem þau hafa gengið í gegnum, og Reva er bara ódauðleg :D

Annars, horfir einhver á C.S.I: Las Vegas hérna? Í lokaþættinum í gær lék nefnilega Cynthia Watros aka Annie Dutton gestahlutverk:) Hún lék eitt fórnarlambið. Svo fór ég að pæla, af hverju er hún alltaf látin deyja eða fara á geðveikrahæli? (LOST) ;)