Jæja, þá er bara fæðing á morgun! Það er svo gaman að sjá fæðingar í sjónvarpinu, þó það sé bara leikið;) En þetta er samt eiginlega ekki bara leikið, því leikkonan sem leikur Jennu var að eignast barn sjálf á þessum tíma, þess vegna fór hún í frí, í fæðingarorlof:) Hún var þá búin að eignast það þarna auðvitað. Vá hvað ég hlakka til, vona að allt verði í lagi!

Annars, hata ekki allir Dinuh núna? Ég hef nú alltaf hatað hana, sérstaklega núna! Svo er hún líka að eyðileggja milli Marcus og Dahliu því Marcus er svo góður vinur, hann myndi aldrei svíkja Dinuh. Mér finnst þetta bara sorglegt, hann á að vera svo góður, en ákvað að hjálpa Dinuh að falsa faðernispróf og ljúga að Hart því hún er besti vinur hans. Sem mér finnst alveg bráðfyndið því þau eru svo ólík. Og Hart og Cassie eru history, eða hvað? Ég gæti í alvöru drepið Dinuh, ef hún væri ekki ólétt;)