Jæja ég las þetta núna áðan á Mbl.is :)

Framleiðslu sjónvarpsþáttanna Guiding Light, Leiðarljós, verður hætt í september en sápuóperan hefur verið framleidd í 72 ár, fyrst í útvarpi en síðar í sjónvarpi.

57 ár eru frá því að fyrsti þátturinn var sýndur í sjónvarpi. Fram að því hafði Leiðarljós verið til í formi útvarpsleikrita frá árinu 1937.

Leiðarljós er í Heimsmetabók Guinness fyrir að vera lengsta sápuópera sögunnar. Sápuóperan hefur verið sýnd í Sjónvarpinu í fjölda ára.


Leiðarljós fjallar um líf íbúa í Springfield en meðal leikara sem stigu sín fyrstu skref á framabrautinni í Leiðarljósi eru Kevin Bacon, Calista Flockhart og James Earl Jones.

Samt sápa sem hefur gengið í 72 ár er snilld.

Væri gaman að hlusta á fyrstu árin og RÚV sem við borgum nú 17.,900 kr að þeir “uppfæri” Ljósið :)

“Það var gaman að kynnast þér Leiðarljós :) :) ”