Já, það má segja að þátturinn í dag hafi endað á mjög dramatískan hátt! Carl bara með byssuskot á bakinu, hann var bara að deyja… Þó það réttlæti ekki morð var hann samt ógeðslegur gaur og átti allavega skilið lífstíðarfangelsi! Það er mjög líklegt að hann deyi og mikil rannsókn hefst á hver gerði þetta. Það er nefnilega spurningin, hver hefur gert þetta? Beth kemur sterklega til greina, þó það sé samt too obvious e-ð, og Harley, maður veit aldrei hvað gerðist frá því hún fór úr skúrnum og aftur í húsið, en ég myndi frekar giska á Beth, Phillip vissi einu sinni ekki af honum fyrr en miklu seinna. En til að nefna e-n sem er ekki eins obvious þá er það Lizzie, hún sást ekkert í þættiunm áðan, það gæti alveg verið, hún er náttlega rosa hrædd við hann og hatar hann fyrir það sem hann gerði mömmu hennar.

Tek það fram að ég er ekki að spoilera, þetta eru bara ágiskanir.

En hvað haldið þið?