Jæja, nú er þetta orðið flókið!! Taylor er þá líklega ófrísk af barni Brooke, líffræðilega. Auðvitað hlýtur það að vera að þetta hafi verið egg Brooke sem voru frjóvguð, þetta er sápa! Greyið Bridget að þurfa að standa í þessu, sérstaklega þar sem Brooke er mamma hennar. Og greyið Taylor, vá eftir allt milli Brooke og Nick þá gerist þetta! En greyið Brooke líka, að komast að því að barnið sem Taylor gengur með er sitt! Já, vona að þetta sé ekki satt, en þetta er sápa svo það er mjög líklegt… sjáum til!

By the way, Constantine syngur vel, en mér finnst hann pirrandi gaur!