Ok ég horfi ekkert á Leiðarljós til þess að koma í veg fyrir allan misskilning, en ég sá endann á þættinum áðan og þá kom einhver ljóshærð gella inn og sprautaði Revu(held það, horfði á þetta í gamla daga, gaman að sjá hana aftur btw)og ég kannast svo svakalega við þessa gellu, mjög ung get lýst henni betur ef þið eruð ekki að kveikja. Ég er búin að fara í gegnum listann á imdb en þetta er bara þvílíkt kraðak af leikurum að það er enginn möguleiki á því að hafa tíma í þetta. Svo ef að þið sápufrík gætuð hjálpað mér þá væri það vel þegið:)