ÞETTA ER SPOILER!


Hver sá fyrsta þáttinn árið 2009, eftir rúmlega eins mánaða frí??!! RAFTING TRIP DISASTER!!

Vá, trúi ekki að Zeke sé dáinn… hann hlýtur að vera lifandi… en spurning hvort allir haldi að hann sé dáinn þar til hann birtist allt í einu eins og Dylan og Connor eftir flugslysið;) Og jei, Libby er komin aftur (þ.e.a.s. Kym Valentine;)) Vona að Didge og barnið séu líka í lagi:) En þessi Greg gaur sem Steph er með er algjört ógeð! Hann er enginn annar en eiginmaður læknisins, Dr.Veronica Olenski, sem hefur m.a. tekið á móti Oscar (bróðir Steph), Charlie (sonur Steph!), Kerry Mangel (dóttir Sky) og sinnt ýmsum Ramsay Street íbúum, og núna hjá okkur er hún læknir Rosie og Frazer.
Steph kemst að þessu þegar hún sér þau kyssast á spítalanum, Olenski er þá að sinna Didge og Libby. Þau eru ekki búin að þekkjast lengi, en hún svaf hjá honum sama daginn og þetta gerðist! Mikið drama í gangi…. Zeke er horfinn og Steph er aftur óheppin í ástarmálum!!

Sjáum hvað gerist á morgun:D