Æ hvað ég fór að hlakka geðveikt til jólanna þegar Leiðarljós endaði í dag (eða gær)! Ég fylltist af svo miklu jólaskapi við að heyra Jerry Ver Dorn og alla leikarana og GL fólkið með mökum og börnum sínum segja ,,Happy Holidays!“ og allir að veifa í 4 mínútur eða e-ð og Let It Snow spilað undir…. Ég var komin í smá jólaskap en núna er ég komin í ennþá meira jólaskap!! :D

Hver ætli þessi fjársjóður sé sem ”jólasveinninn“ gaf Cassie, Tammy og Lewisfólkinu….?? Vona að Hart fái kjark til að segja Dinuh upp og fara til Cassie! Og vá, hvað ég þoli ekki Beth núna… myndi vilja sjá hana og Phjillip saman aftur, en bara ekki núna því hann er með Harley… fannst Beth og Phillip alltaf sæt saman en núna er ég ”Phirley" fan og Beth átti tækifæri en klúðraði því… :)

Bætt við 21. nóvember 2008 - 01:35
Hefði viljað sjá hana og Phillip aftur… í þátíð…