Enn og aftur sá ég manneskju í C.S.I: NY sem ég kannaðist við, og í þetta sinn var það Frank Grillo (Hart) í þættinum í gærkvöldi. Hann lék gestahlutverk þar og fyrst var ég bara ,,ha, leikur hann vonda gæjann???“ en svo var ekki:) Jú, hann drap þennan Bobby Toole en bara til að verja bróður sinn, og svo var hinn bróðir hans morðinginn, þessi ”3:33 caller“ hans Mac, sem var gaurinn sem var að eltast við Stellu. Mér fannst hann nú alltaf doldið grunsamlegur en datt auðvitað ekki í hug að hann væri ”3:33 callerinn“! ;)

Alltaf jafn gaman að sjá svona e-n sem maður ”þekkir" leika gestahlutverk í svona þáttum:) Hann var auðvitað 11 árum eldri, en doldið fyndið því Melina Kanakaredes lék líka í GL einu sinni (var reyndar farin þegar hann kom).

Hef tekið eftir því að margir úr B&B eða GL leika gestahlutverk í C.S.I: NY, eins og Ashley Jones (Bridget í B&B), Dax Grffin (Shane í B&B) og núna Frank Grillo. Ætli Melina hafi e-r sambönd? ;) Svo hef ég líka séð Ashley Jones í Wihout A Trace og Mackenzie Mauzy (Phoebe í B&B) í Cold Case;)