Mér er farið að finnast þessi Ben rosalega pirrandi og ógeðslegur!
Að reyna svona við bróðurdóttur sína! Bara til að hefna sín á Ross .. og svo það sem hann sagði við Blake að afþví Ross vildi ekki veita honum fæðingarrétt sinn þá liti hann ekki á Dinuh sem bróðurdóttur heldur sem mjög aðlaðandi konu :S
En ég trúi því nú varla að hann láti eitthvað meira að gerast á milli sín og Dinuh, eða ég vona allavega ekki! Samt aldrei að vita hvað honum dettur í hug :S


Og vá .. hvað ég vorkenni Abby!! Að dreyma Roy svona og heyra hann tala í draumnum :S

En gat einhver heyrt hver þetta var á upptökunni? Var þetta Roy eða einhver vinur hans?
We were swimming in the ocean