Í gær var ég að horfa á C.S.I: New York þátt þar sem tvö morð tengdust í gegnum 3 konur sem voru nauðgað af sama manninum, Mitchell Bentley. Þegar þau voru að fara að tala við manninn sem drap eitt fórnarlambið, konu sem var nauðgað af Mitchell Bentley (sem dó líka og var drepinn af annari konu sem hann nauðgaði), hver var þar nema Dax Griffin sem leikur Shane í B&B! Hann var með aðeins öðruvísi hárgreiðslu en ég þekkti röddina hans um leið. Það er alltaf gaman að sjá svona leikara í þessum þáttum, ég man einu sinni þegar Ashley Jones (Bridget í B&B) lék líka morðingjann í C.S.I:NY og svo í Without A Trace einu sinni, en þar lék hún nauðgunarfórnarlamb.