Hæhæ. Ég ætla að að búa til kork um SPOILER, aðallega um Brooke, sem gerist í júlí/ágúst 2007 og e-ð eftir.

Semsagt, í júlí 2007 reyndi Stephanie að sanna að Brooke væri óhæf móðir (enn ein hefndin á Brooke) og kom með barnaverndarsamtök heim til hennar og lét Ridge fara fram á tímabundið forræði yfir R.J og Hope (sem hann síðar hætti við). Ekki nóg með það, þá réð hún lögmanninn Andy Johnson til að eltast við Brooke (til að láta það líta illa út svo hún fái ekki börnin aftur). Andy senti Brooke gjafir og daðraði við hana. Eitt kvöld í kringum 20.ágúst þá elti hann hana heim af Café Russe (þau hittust þar og fóru að tala saman en Brooke fór að finnast hann e-ð skrýtinn seinni partinn) og nauðgaði henn í stofunni hennar. Hann vissi að hún átti að fara í rétt daginn eftir út af forræði barnanna og hótaði henni með því.
Brooke sagði ekki neinum það fyrst, en svo á hún eftir að segja t.d. Bridget, Ridge, Nick, Katie (hin systir Brooke), Donnu, Eric, Feliciu, Ashley (sem Ridge á eftir að vera pínu með) og Stephen það. Eftir að Brooke saðgi Ridge það nokkrum dögum eftir fór hann á eftir Andy og þeir slóust á þakinu á Café Russe. Andy sagði að hann hafði ekki verið einn, að einhver hafði hjálpað honum að komast til Brooke, sagt honum allt um hana og gefið honum lykil að húsinu hennar, en áður en hann gat sagt hver það var, dó hann af rafmagnsstuði (hann hélt á e-u loftneti) og það var úrskurðað sem slys. Brooke jafnar sig að lokum en þegar Stephanie komst að sannleikanum fór hún burt, til Chicago, til móður sinnar. Hún kom aftur og Brooke var mjög reið og skipaði henni að fara. Ástandið milli þeirra hefur samt ekki lagast mikið, kannski pínu.
Hún og Ridge eru saman núna, trúlofuð, og hún er búin að jafna sig aðeins, en gleymir þessu aldrei.

Hér er video í 3 hlutum þegar hann nauðgar Brooke ef þið viljið sjá (ekkert skemmtiefni samt):

http://www.youtube.com/watch?v=_RfFMJHzq_4 - 1.hluti

http://www.youtube.com/watch?v=M1FCBrJ4p6k - 2.hluti

http://www.youtube.com/watch?v=29Mg8GtYB2A - 3.hluti

Hér eru svo nokkur video eftir nauðgunina og hvernig hún tekur á þessu:

http://www.youtube.com/watch?v=rXwsoIKwjJQ&feature=related - Byrjunin á harmleiknum. Stephanie kynnist Andy og þau tala saman um Brooke… Andy sendir henni “fugl” og þau hittast á Café Russe.

http://www.youtube.com/watch?v=UnQGnASIM9g&feature=related - Stephanie kemur með leiðinlegar athugasemdir um Andy við Brooke rétt eftir nauðgunina (Stephanie veit ekkert þá um það).

http://www.youtube.com/watch?v=Yi8xj1kgSRM - Brooke er í Big Bear og ímyndar sér að Andy sé þarna.

http://www.youtube.com/watch?v=Cad3V17iT2M - Fyrir Forrester tískusýningu (stuttu áður en Nik selur Eric fyrirtækið aftur) reynir Brooke að copa við að sýna undirföt sirka 2 mánuðum eftir nauðgunina.

http://www.youtube.com/watch?v=aoZIfkoGsT8 - Eftir tískusýninguna. Brooke fríkar út þegar hún á að sýna undirföt (heldur að hún sér Andy í áhorfendasalnum), fer inn á skrifstofu og Ridge kemur og reynir að hugga hana. Frábær leikur hjá KKL verð ég að segja.

http://www.youtube.com/watch?v=JOnyoeR9PLQ&feature=related - Stephanie biður Brooke um fyrirgefningu eftir að hún kemur aftur frá Chicago.

Svo er meira af videoum á youtube;)

Þetta er einn af bestu söguþráðum í B&B finnst mér og alveg besti af árinu 2007.