Já þetta er HÁLFGERÐUR SPOILER, SVO EKKI LESA EF ÞÚ VILT EKKI VITA!! :D

Í þættinum í gær (fimmtudaginn 10.september) rakst Rachel á mann hjá sundlauginni, og það er Angus Henderson!! Hann á eftir að koma mikið við sögu, hann og Rachel fara á stefnumót (man ekki hovrt þau voru búin að fara á fleiri en eitt), en svo kemst hún að því, í kennslustund, að hann er nýr kennari í skólanum!! En þau halda áfram að vera saman, sem margir eru mjög ósáttir við, Susan, Karl, Zeke, jafnvel blöðin og lögreglan!! Því hann er náttlega kennarinn hennar! En hann er dæmdur í fangelsi, og Rachel er að deyja úr ástarsorg og hún og Susan sættst loksins eftir löng rifrildi….

En svo fær hann að fara fyrr úr fangelsinu fyrir góða hegðun og þá er ennþá meiri drama!! Rachel flytur inn til hans og alles, lböðin halda áfram að áreita þau, en loks fyllir það mælinn þegar hann biður hana að koma með sér til Adelaide, til að flytja! hún segir já fyrst, en í bílnum á leiðinni hættir hún við og fer heim til Susan, Karl og Zeke, og hann hverfur…. DRAMA DRAMA DRAMA!!!

Bætt við 11. september 2008 - 19:02
Gleymdi að feitletra þar sem ég skrifaði SPOILER, en það ætti að vera nokkuð ljóst… :)