Hæhæ. Ég er nýr stjórandi hér á /sapur með kjutipae og vettlingurinn, og meðal þess sem við ætlum að breyta hér er að leyfa spoilera, VEL MERKTA. Ég ætla að leyfa mér að prófa það, og ég passaði að merkja þetta vel, svo ef það er e-r sem fer að skoða þetta sem vill ekki vita þetta, getur hann bara sjálfum sér um kennt.

Það er bara margt að gerast í Bold þessa dagana, svo mig langar að deila þessu með ykkur sem viljið vita, svo hér kemur SPOILER.

Ég hef horft á Bold þætti á netinu næstum því daglega síðan í svona ágúst 2007, eftir að Brooke var nauðgað. Þið getið lesið allt um það ef þið viljið, bara á google eða e-ð. Nenni ekki að segja frá því núna, en hún er búin að jafna sig allavega.

Í nýjustu þáttunum snýst mest allt um að Eric fékk “hjartaáfall” og er í dái, en núna er komið í ljós að þetta var ekki venjulegt hjartaáfall, hann fake-aði það ekki eins og Stephanie, heldur var honum byrlað eitur sem kom því af stað. Margir hafa verið grunaðir, m.a. Donna (hún og Eric eru gift núna), STEPHANIE og svo grunaði Marcus (sem er sonur Donnu já, margt eftir að koma í ljós) Owen (sem er gaurinn sem hjálpaði Marcus að finna mömmu sína, Donnu. Svo grunaði mig í smástund Stephen, pabba Logan kvennanna. En þegar var verið að fara að handtaka Donnu (það fannst einhver lyfseðill eða e-ð inní herberginu hennar og Erics), játaði Owen til að vernda hana, en það var ekki hann.

Komið er í ljós að sökudólgurinn er Pam, systir Stephanie! Hún er víst með bipolar eða e-ð, og er ekki búin að taka lyfin sín í 3 mánuði, og samkvæmt Ann, mömmu hennar og Stephanie, hefur hún gert ýmsa klikkaða hluti þegar hún er ekki á lyfjunum. Owen fattaði það í þættinum i gær og Donna líka í endanum þegar hún og Pam voru í Big Bear, sérstaklega þegar Pam fór að hegða sér skringilega og miðaði byssu á Donnu. Svo á hún víst eftir að binda hana og setja hunang um hana alla til að laða að birni (það hefur verið mikið um birni þarna nýlega) og e-ð.
Það er bara allt að gerast, en ég kveð núna:)

Kveðja
Heidal sápufan:)