Já, ekkert GL verður í dag því að RÚV er að sýna frá þegar það er að taka á móti Íslendingunum í Ólympíuleikunum eða e-ð… Það er rosa fúlt, sérstaklega þar sem þátturinn í gær endaði svo spennandi. Maður fékk að vita að Jesse er sá sem fékk hjarta Maureen. Hann fattaði það þegar hún sagði honum dagsetninguna og eftir að hann sagði Nolu að hann hætti fór hann á baðherbergið, horfði á sig í speglinum, opnaði skyrtuna og þá sá maður ör eftir hjartaaðgerð. Hann veit það, en enginn annar, ekki Michelle heldur. Ég get þess vegna ekki beðið þar til á morgun!!