Yey, Mickey er kominn!! Er búin að bíða eftir honum í næstum ár… ;) Hvað finnst ykkur um hann og staðreyndin að Ned sé allt í einu orðinn faðir? Haldiði að hann muni standa sig vel í föðurhlutverkinu? Hann hefur náttlega enga reynslu og hann vissi ekki að hann ætti son fyrr en bara í dag og vissi ekki einu sinni að Mickey væri til! Mér finnst doldið ótillitsamt af Kirsten að koma bara allt í einu og segja honum frá Mickey og biðja hann um að hafa hann í nokkra daga á meðan hún jafanr sig á dauða ömmu sinni og afa. Meina hún hefur haft 8 ár til að segja honum sannleikann. En nú er bara að bíða og sjá hvernig þetta gengur allt saman… :)