Þetta var hrikalega dramatískur og sorglegur þáttur í dag.. :( Þetta gerðist allt svo snöggt, Bridget missti vatnið allt í einu og Nicole vildi fara að koma. Hún fæddist andvana, læknarnir reyndu að lífga hana við en það gekk ekki. Bridget fékk að halda á henni og ég var bara farin að hágrenja yfir þessu atriði! Það var rosalega sorglegt að horfa á þetta, maður fann alveg hvað Birdget þjáðist mikið.

Og greyið Nick líka, sem var ekki einu sinni viðstaddur þegar þetta allt gerðist. Hann fór heim haldandi að allt væri í lagi og svo kemur hann aftur og þá er barnið bara dáið.

Þetta var án efa sorglegasti eða einn af þeim sorglegustu þáttum sem ég hef séð. :(