Hrikalega var hún leiðinleg við Brooke í þættinum í dag! Ég bara skil ekki hvernig hún komst að þeirri niðurstöðu að það er allt Brooke að kenna að hjónabandið hennar fór í rúst (sem var nú eiginlega aldrei alvöru hjónaband eftir að hún kom aftur). Það er nú eiginlega hennar sök (Taylor), Brooke hefur ekkert með þetta að gera. Nema kannski að Ridge þolir ekki hræsnina í Taylor og Stephanie í garð Brooke og hann vill hana aftur, en það er bara einhliða held ég sko. Mér fannst hún ekki bara ósanngjörn og leiðinleg, heldur bara illgjörn. Og það er rétt hjá Brooke. Taylor er bara að verða Stephanie nr.2 !

Og það er merkilegt hvað Brooke þoldi mikið af þessu, ef ég hefði verið hún væri ég löngu búin að slá hana utan undir…!