Já, árið endaði spennandi og sorglega. Guy kom aftur, til Steph, þar sem hún og Katya var. Zeke kom og hann heldur þeim þrem sem gíslum. Guy heimtaði að fá peningana en Katya sagðist ekki vera með þá, og það er rétt. Karl kom og Steph þurfti að þykjast vera voða happy… Toadie kom og hann varð gísl líka. Katya laug og sagðist vera með peninga en Guy var ekki að trúa því. Guy reiddist og spurði Katyu hvern hann ætti að drepa fyrst. Zeke lemur hann og hann og Katya hlupu út til Karls sem var fyrir framan. Steph hljóp út með Charlie og Toadie var einn eftir inni með Guy. Hann rotaði Guy og leitaði að byssunni en hann hafði ekki tíma og var að hlaupa út þegar Guy skaut hann…!

Ég er búin að bíða eftir þessu í nokkra mánuði, sá þetta á youtube, en það er allt öðruvísi að sjá þetta í sjónvarpinu;)

Og svo var leyndarmál Wiils/Seabastian sýnt.. Mr.2% ;) Hafiði tekið eftir því að þrátt fyrir að hafa ekki verið í þáttunum hefur hann verið nefndur þónokkrum sinnum sem Mr.2% í Lassiters? hehe

Og ég vona að Rosie ætli ekki að sof hjá Paul bara útaf heitinu… oh, það væri hræðilegt!

En hvernig fannst ykkur allt dramað í dag?