Já, hvernig fannst ykkur svo lokaþátturinn? Mér fannst hann doldið sorglegur einhvern veginn… Allir voru að kveðjast og svona… Þetta virkaði svona eins og þetta væri síðasti þátturinn, kæmi engin önnur sería, en er öruggt að það komi önnur? Ég vona allavega að það komi önnur;);)
En já, síðan hálfvorkenni ég nú Dan.. Maður er nú ekki mannlegur ef maður vorkennir honum ekki smá. Ég gat varla horft á atriðið þar sem hann ætlaði að hengja sig.. en sem betur fer rifnaði lakið. Ég er samt ekki sátt við hann útaf því sem hann gerði, og verð það aldrei. En æ, greyið…
Jæja, vonum bara að það komi önnur sería:D